Marta Rós ber ábyrgð á forystu og þróun Baseload Power á Íslandi og mun gegna lykilhlutverki við þróun jarðvarmaverkefna sem nýta lághita til framleiðslu á rafmagni og heitu vatni.
Marta Rós er með doktorsgráðu og MSc gráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands, með hluta námsins við Norska vísinda- og tækniháskólann (NTNU) á sviði orku- og umhverfisverkfræði.
Hún hefur víðtæka reynslu innan orkumála á Íslandi með áherslu á jarðvarmavirkjanir, sjálfbæra auðlindanýtingu, bætta orkunýtni, stjórnsýslu og stefnumótun.
Áður en hún hóf störf hjá Baseload þann 1. október s.l. gegndi hún stjórnunarstörfum hjá Orkustofnun og Orku náttúrunnar, auk sjálfbærniráðgjöf hjá Verkís verkfræðistofu. Hún sinnir jafnframt stundarkennslu og tekur þátt í rannsóknarstarfi við Háskóla Íslands.
“Ísland gegnir lykilhlutverki í þróun jarðhitanýtingar á heimsvísu. Baseload Power á Íslandi hefur þá sérstöðu að vinna að minni og meðalstórum jarðhitaverkefnum sem hafa það markmið að framleiða raforku og heitt vatn úr sjóðandi lághitaauðlindum á hagkvæman máta, nærsamfélögum til heilla. Slík verkefni eru jafnframt raunhæf víða um heim. Á alþjóðavettvangi starfar Baseload samstæðan að því að hraða þróun jarðhitanýtingar og vinnur nú að verkefnum í Japan, Bandaríkjunum og Taívan ásamt Íslandi. Ég er afar spennt að vinna með framúrskarandi fagfólki, bæði hérlendis sem erlendis, og byggja upp íslensk verkefni sem og koma okkar reynslu og þekkingu á sviði jarðhitanýtingar enn frekar í not erlendis." segir Marta Rós.